Fréttabréf janúarmánaðar
Þriðja fréttabréf skólaársins hefur nú litið dagsins ljós. Það má finna hér á síðunni ásamt áður útgefnum fréttabréfum.
Þriðja fréttabréf skólaársins hefur nú litið dagsins ljós. Það má finna hér á síðunni ásamt áður útgefnum fréttabréfum.
Félag stærðfræðikennara stendur fyrir svokölluðum Degi stærðfræðinnar fyrsta föstudag í febrúar og í ár ber hann upp á 3. febrúar. Margir leik-, grunn- og framhaldsskólar hafa haldið daginn hátíðlegan undanfarin ár. Markmiðið með þessum degi er að vekja nemendur og aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu. Einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjá hana í víðara samhengi.
Foreldrafélag skólans hefur nú fengið undirsíðu hér á vefnum. Þar mun stjórn félagsins miðla upplýsingum til foreldra s.s. fundargerðum o.fl. Ný stjórn tók við félaginu í haust og er Thelma Hjaltadóttir nýr formaður þess.
Helgina 21.-22. janúar fór fram bikarmót í alpagreinum 13-14 ára á Akureyri. Bestum árangri náðu Helga Þórdís Björnsdóttir sem var í 4. sæti 13 ára stúlkna bæði í svigi og stórsvigi og Friðrik Þórir Hjaltason sem var í 4. sæti í svigi og 5. sæti í stórsvigi 13 ára drengja. Helga Þórdís og Friðrik eru bæði nemendur í 8. bekk G.Í. og óskum við þeim að sjálfsögðu til hamingju með árangurinn. (www.snjor.is)
Í síðustu viku voru afhentar viðurkenningar fyrir svokallað Brúarverkefni í dönsku, sem 10. bekkur G.Í. tók þátt í fyrir áramótin. Verkefni þetta var samskiptaverkefni íslenskra grunnskólanemenda sem leggja stund á dönsku, sænsku og norsku og samlanda þeirra er sækja íslenskukennslu á Norðurlöndunum. Markmiðið var að stuðla að notkun norrænna tungumála og samvinnu nemenda á Íslandi, í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í gegnum skapandi viðfangsefni á neti.
Grunnskólinn á Ísafirði hafnaði í 3. - 4. sæti með myndbandið Tónlistin okkar. Í myndbandinu kynntu krakkarnir tónlist sem eitt aðaláhugamál þeirra og spiluðu á píanó og fiðlu. Þátttakendur voru þau Haraldur Jóhann Hannesson, Kristín Harpa Jónsdóttir, Maksymilian Haraldur Frach, Sara Björgvinsdóttir og Sigríður Salvarsdóttir, undir leiðsögn dönskukennaranna sinna, þeirra Ölmu Frímannsdóttur, Guðríðar Sigurðardóttur og Kristínar Ólafsdóttur.
Vegna mikillar ófærðar hefur verið ákveðið að fresta Vestfjarðakeppni Samfés sem halda átti í Súðavík 27. janúar til föstudagsins 3. febrúar n.k.
Fundur með forráðamönnum nemenda í 4. og 7. bekk sem vera átti í dag kl. 18:00 hefur verið frestað til mánudagsins 30. janúar kl. 18:00.
Skólahald fellur niður í dag vegna ófærðar og óveðurs.
Vegna versnandi veðurspár verður skólahald fellt niður eftir kl. 13:05 en Dægradvöl er opin. Strætisvagnar fara frá skóla um kl. 13:15.